FLETTIMYNDIR - Vallanes

grodurhus.jpg

Uppskera

uppskera banner1.jpg

Starfsemin

dukur.jpg

Bóndinn

eymi2.jpg

Byggið

bygg banner 7.jpg
Brauð og morgunverður
Orkuskonsur Prenta út

Hráefni:
2 dl byggmjöl
2 dl soðið Bankabygg
2 dl heilhveiti eða spelt
3 msk hveitiklíð

3 msk sólblómafræ
3 msk sesamfræ
1/2 tsk lyftiduft
1/2 tsk salt
2 msk hunang

4 msk kornolía
3 egg
4 dl súr­mjólk eða ab-mjólk


Aðferð:
Blandið öllu saman og hrærið. Smyrjið deiginu fremur þykkt yfir pönnuköku­pönnu.
Bakið við lítinn eða meðalhita. Látið skons­una þorna að ofan áður en henni er snúið við. Setjið örlítið af olíu á pönnuna ef skonsurnar vilja festast. Það fást u.þ.b. 6 skonsur úr upp­skrift­inni.
 
Brauðvélarbomba Prenta út
Ástarsamband bóndans og brauðvélarinnar

Hráefni:
2 msk olía
2 dl heitt vatn
2 dl volg mjólk
1 skammtur (65 ml) LGG+ blár eða grænn
(má líka nota súrmjólk, jógurt eða ab-mjólk)
1 hnefi ómöluð fjalla­grös
2 dl bygg­­
mjöl
1 dl sól­blómafræ
1 dl sesamfræ (má vera hörfræ eða blanda)
4 dl hveiti
2 dl
heilhveiti
1 dl rúgmjöl
1 dl haframjöl
1 dl rúsínur
1 msk kúmen eða 1/2 af kanel,
3 tsk þurr­ger.
Bæta má við 1 dl af Morgungraut Gabríels.

Aðferð:
Setjið efnin í brauðvélina að kvöldi, í sömu röð og þau eru talin upp, þannig að  fjallagrös­
in, bygg­mjölið og kornið liggi í vökvanum yfir nóttina.
Bökun­ar­­­­stilling: Heilkornabrauð-dökkt.
Ilmurinn af bústnu, bragðgóðu og hollu brauðinu mun vekja þig að morgni.
Verði þér að góðu.
 
Byggte Prenta út
Hráefni:
1 dl Bankabygg
1 msk sítrónubörkur (af lífrænt ræktaðri sítrónu)
1 kanelstöng

Aðferð:
Þetta er soðið saman í ca 1 l af vatni í minnst 15 mín.
Gott er að kæla þetta te með eplasafa. Byggið og börkinn má síðan nota í brauð eða matar­gerð.
Til tilbreytingar er gott að setja smá bita af ferskum engifer útí.
 
Grænkálspönnsur Prenta út

Hráefni:

6 dl sojamjólk eða mjólk
2 egg
2 dl spelt eða heilhveiti
2 dl byggmjöl

1 1/2 tsk salt
2 msk ólífuolía
4-5 grænkálsblöð

 

Aðferð:

- grænkálið er tekið af stilknum og saxað fínt, síðan er það sett út í sjóðandi vatn og    soðið í ca 5 mín, þá er það kælt og vatnið látið renna af því í sigti- nú er allt þeytt saman í pönnukökudeig og látið bíða í ca 1/2 klst og jafna sig

- pönnukökurnar eru bakaðar á venjulegan hátt

- gott er að nota þær sem matarpönnukökur eða bara. 
 
Indverskt Naan-brauð úr byggmjöli Prenta út
Hráefni:

200 gr byggmjöl
250 gr hveiti
1 dós hrein jógúrt
1 msk hrásykur

1/2 msk salt
2 msk sesamfræ og 50 gr þurrger (eða 5 tsk lyftiduft, t.d. vínsteins­lyftidyft sem fæst í heilsubúðum)

 

Aðferð:
Leysið þurrgerið upp í 1 dl af vatni. Hrærið öllu hráefninu saman. Hnoðið deigið og
rúllið því í lengju og skerið í 2 cm þykkar sneiðar. Fletjið í 1/2 cm þykkar sneiðar og steikið á pönnu eins og klatta. Berið fram með íslensku smjöri.
 
Byggbrauð / byggbollur með geri Prenta út
Hráefni:
1 dl byggmjöl
1 dl soðið Bankabygg
3 dl hveiti
1 dl heilhveiti
1/2 dl hveiti­
klíð
3 tsk þurrger
3 dl volg undanrenna
1 msk matarolía
1 msk sól­blómafræ

1 msk sesam­fræ

1 msk hörfræ
1 dl fjalla­grös
1/2 dl rúsínur

Aðferð:

Blandið saman þurrefnum ásamt þurrgeri (takið frá 1/2 -1 dl af hveiti til að hræra upp í deigið á eftir). Hellið olíu og undanrennu út í þurrefnin og hrærið vel með sleif (deigið má vera blautt). Stráið hveiti undir og yfir deigið og látið það lyfta sér á hlýjum stað í hálftíma. Hnoðið afgangshveitinu saman við ef þarf. Mótið lengju úr deig­inu og skiptið henni í 10-12 jafnstóra bita. Mótið bollur úr bitunum og raðið á bök­unarplötu. Látið deigið hefast á hlýjum stað í 15-20 mín. Penslið bollurnar með vatni eða mjólk.

Bakið í miðjum ofni við 200 C í 15 mín. (brauð í 45 mín.). Ath. ef
notað er perluger er það leyst upp í 1 1/2 dl af volgu vatni í 5-10 mín og 1 1/2 dl af mjólk er síðan blandað saman við.
 
Byggbrauð / byggbollur með lyftidufti Prenta út
Hráefni:

2 dl byggmjöl

2 dl soðið Bankabygg

2 dl heilhveiti

2 dl hveiti

1/2 dl hveiti­klíð

2 msk lyfti­duft

3 1/2 dl mjólk

1 msk sólblómafræ

1 msk hörfræ

1 msk sesamfræ

1 tsk kúmen

1/2 lúka fjallagrös
1/2 dl rúsínur
 
 

Aðferð:

Blandið öllu saman í skál, hrærið og hnoðið deigið létt. Bætið mjöli saman við ef þarf en gæt­ið þess að deigið verði ekki þurrt. Byggbrauð: Látið deigið í brauðform, stærð 22x8 cm, og bakið neðarlega í ofni við 200°C í 45 mín.Byggbollur: Skiptið deiginu í 16 parta. Mótið bollurnar og penslið þær með mjólk eða eggi. Bakaðar í miðjum ofni við 225°C í 15-18 mín.
 
Magnað morgunverðarbrauð Skoða sem PDF skjal Prenta út

1 bolli hveiti
1/2 bolli byggmjöl
1/2 bolli maísmjöl
1 msk lyftiduft
1 tsk kanill
1 tsk engifer
2 msk demerarasykur eða hrásykur
1 egg
1 bolli grillað zucchini í ólífuolíu (sigtið olíuna frá)  eða 1 bolli rifið ferskt zucchini
1 bolli mjólk


Blandið þurrefnum saman í skál. Þeytið blautefni saman í annari skál og blandið svo varlega saman við þurrefnin.

Bakið í vel smurðu brauðformi við 200°C í ca. 30 mín. Stingið tannstöngli eða prjóni í brauðið. Það er tilbúið þegar hann kemur þurr til baka. Brauðið er gott með osti og kaffi eða te.

*Vel má prófa sig áfram með byggmjölsmagnið og skipta jafnvel út hveitinu fyrir það. Í stað zucchini má nota ýmislegt fleira, t.d. eplamauk,rúsínur, grasker, þurrkaða ávexti eða fersk bláber eða hindber.

 
<< Byrja < Fyrra 1 2 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 2
Móðir jörð - Vallanesi - 701 Egilsstöðum
sími:471-1747 - gsm:899-5569