FLETTIMYNDIR - Vallanes

bread.jpg

Uppskera

kaal.jpg

Starfsemin

woofsbanner2.jpg

Bóndinn

eymi.jpg

Byggið

buff.jpg
Verðum í Garðheimum um helgina
Föstudagur, 03 September 2010 13:21


Móðir Jörð
verður á Uppskerumarkaði Garðheima dagana 4. og 5. september.  Í boði er flest það nýjasta sem sprottið hefur upp úr jörðinni undanfarið, s.s. kartöflur, rófur, hnúðkál, grænkál, salat og steinselja.

Einnig ómótstæðileg bláberjasulta sem er það nýjasta frá Móður Jörð
Opið báða daga frá 11-16. 

 
Uppskera hafin í Vallanesi
Laugardagur, 10 Júlí 2010 12:34

Það voraði vel á Héraði og kornsánig hófst óvenju snemma eða í lok apríl, sáð var bæði byggi og hveiti. Mikil aukning er í ræktun grænmetis og von er á miklu úrvali þegar líður á sumarið. Eftir langt þurrkaskeið í vor fór loks að rigna nú fyrir skömmu og þá fór allt að spretta og salathausarnir tóku gleði sína á ný.

Núna er komið á markað grænkál, salat og steinselja og von á hnúðkáli von bráðar. Fyrsta sending er komin í verslanir á Egilsstöðum og á höfuðborgarsvæðinu og næsta sending kemur í verslanir í Reykjavík og nágrenni n.k. miðvikudag, 14. júlí.

Nú þegar salatið er komið er rétt að minna á Gulrófuglóna sem ásamt góðu salati er fyrirtaks meðlæti með grillsteikinni.

Gleðilegt grillsumar.

 
Sýning í Perlunni 1. og 2. maí 2010
Laugardagur, 01 Maí 2010 19:15
Móðir Jörð tekur þátt í sýningunni Íslandsperlur sem haldin er í Perlunni 1. og 2. maí. Þar gefst gestum tækifæri til að kynnast því hvað landshlutarnir hafa upp á að bjóða fyrir ferðalanga bæði er varðar ferðamöguleika, afþreyingu og mat. Móðir Jörð kynnir vörur sínar á sýningunni og gestir geta fengið að bragða á ýmsum afurðum undir merkjum Móður Jarðar.
 
Hrökkvi kominn á markað
Þriðjudagur, 06 Apríl 2010 13:22

Enn ein dásemdin frá Móður Jörð hefur nú litið dagsins ljós.

Það er þunnt hrökkkex sem nefnist Hrökkvi og er í þremur bragðtegundum:

Sesam  Hrökkvi    
Kúmen Hrökkvi    
Hvannar Hrökkvi   

 

Hrökkvi er þunnt og stökkt hrökkkex, gott með ostum og öðru áleggi, 

t.d. Rauðrófugló og Gulrófugló frá Móður Jörð.

Hrökkvi er einnig frábært og hollt snakk beint úr pokanum.

 

Hrökkvi er að mestu úr trefjaríku byggmjöli sem bætir meltinguna og er góð undirstaða að heilbrigðu mataræði.

 

 
Ný vara frá Móður Jörð
Þriðjudagur, 30 Mars 2010 22:33

Komin er á markað ný vara frá Móður Jörð og nefnist hún Gulrófugló.

Gulrófugló er skilgetin systir Rauðrófuglóar sem fæddist fyrir síðustu jól og glóir ekki síður en hún af hollustu og ferskleika.

Gulrófugló er kraftmikil sulta með gulrófum eins og nafnið bendir til, einnig þurrkuðum ávöxtum og austurlenskum kryddum.  Gulrófur eru ríkar af C- vítamínum og við bætum þurrkuðum hvannarfræjum saman við, hollustunnar vegna.  Gulrófugló er góður bragðauki með ostum, ofan á kexið eða brauðið á morgnana. Auk þess er hún kærkomin viðbót við grillsteikina og aðra kjöt og grænmetisrétti.  Innihald: Gulrófur,  döðlur, apríkósur, sykur, eplaedik, engifer, hvannarfræ, ferskur eldpipar, krydd, salt.
Verði ykkur að góðu!

 

 

 
Jólatréssala hafin
Föstudagur, 18 Desember 2009 13:51


Jólatréssala Móður jarðar hefst 17. desember og stendur fram á Þorláksmessu.
Salan verður við Yggdrasil á Skólavörðustíg milli kl. 13 og 22.
Mikið úrval af stafafuru.
 

Vallanestrén vinsælu eru nánast uppseld núna 21/12 og sölu hætt við Yggdrasil,  örfá tré eru eftir hjá frú Laugu Laugalæk 6.

Takk fyrir frábærar móttökur og Gleðileg Jól.

 
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 4 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 4
Móðir jörð - Vallanesi - 701 Egilsstöðum
sími:471-1747 - gsm:899-5569